

Náttúra og útivist
Byggingarland Vetrarmýrar er einstakt þegar litið er til nálægðar við náttúru. Þaðan er örstutt í Heiðmörk, eitt stærsta og vinsælasta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, en hún er að einum þriðja hluta í landi Garðabæjar. Yfir byggðinni tróna sögufrægar byggingar Vífilsstaða á Vífilsstaðahæðinni og skammt undan eru Vífilsstaðavatn og Vífilsstaðahraun.
Græni trefillinn
Græni trefillinn er samheiti sem notað hefur verið yfir skógræktar- og útivistarsvæðin á útmörkum sveitarfélaganna sjö sem mynda höfuðborgarsvæðið. Hlutverk Græna trefilsins er að umlykja og skýla byggð og fjölþættri útivist sem fram fer á útmörkum, með fjölbreyttum skógum og ræktun, en að baki liggur einnig hugmyndafræði þar sem áhersla er á bætt umhverfi, aukin lífsgæði, bætta lýðheilsu og vatnsvernd. Segja má að Græni trefillinn sé næsti nágranni Vetrarmýrar.
Stígakerfi
Í skipulagi hverfisins er gert ráð fyrir fjölbreyttu göngu- og hjólastígakerfi með góðum tengingum við þessi útivistarsvæði, ásamt jarðbrú yfir Reykjanesbraut sem styrkir mjög tengingu yfir í miðbæ Garðabæjar. Ein af meginhugmyndum deiliskipulagsins er grænn breiður stígur, svokallaður Vífilsstaðaás, trjágöng sem liggja frá Vífilsstaðaspítala og upp á Hnoðraholtið.
Þetta stígakerfi, ásamt nálægð við golfvöll og íþróttasvæði, gerir Vetrarmýri að afar ákjósanlegum stað fyrir aktífan lífsstíl og holla hreyfingu allan ársins hring.
Opnir garðar
Opnir garða verða innan íbúðarbyggðar austan Vetrarbrautar, aðalbrautarinnar sem gengur í gegnum allt hverfið frá norðri til suðurs. Garðarnir verða allir tengdir þannig að gestir og gangandi geti gengið á milli þeirra og notað sem viðbót við önnur almenningsrými. Einnig eru garðar við íbúðabyggð vestan Vetrarbrautar og þar geta gestir gengið á milli á grænu bandi sem endar í norðri á opnu svæði umhverfis settjörn.
Leik- og útivistarsvæði
Leiksvæði verða innan lóða fjölbýlishúsa. Stórt grænt svæði, Búðakinn, verður einskonar hverfisgarður í beinum tengslum við jarðbrúna sem liggur yfir Reykjanesbraut yfir í önnur hverfi Garðabæjar. Öll þessi útivistarsvæði eru hugsuð sem staðir með fjölbreytta afþreyingamöguleika fyrir gesti og gangandi.