

Innviðir
Þjónusta við íbúa
Samkvæmt deiliskipulagi er gert ráð fyrir lengju af atvinnuhúsnæði syðst og vestast í Vetrarmýri þar sem gert er ráð fyrir að ýmis fyrirtæki og stofnanir setjist að, svo sem verslanir og heilsutengd þjónusta, en einnig verða atvinnurými á neðstu hæðum íbúðarhúsa.
Innan hverfisins er nýtt fjölnota íþróttasvæði ásamt íþróttahöll, sem mun setja mikinn svip á hverfið og skapa tækifæri til heilsueflingar og öflugs tómstunda- og íþróttastarfs. Við hlið íþróttasvæðisins munu rísa bæði skóli og leikskóli.
Við hönnun hverfisins hefur verið lögð áhersla á fjölbreytta og aðlaðandi byggð sem þjóni breiðum hópi íbúa. Einnig er lögð áhersla á gott samspil skóla, leikskóla og íþróttamannvirkja og greitt aðgengi að þessari starfsemi, bæði innan svæðis og frá aðliggjandi byggð.
Vetrarmýri eru einn hluti af stærra skipulagssvæði í landi Vífilsstaða, en í beinu framhaldi koma Skyggnisholt, Hnoðraholt og Rjúpnahæð. Hverfið tilheyrir Garðabæ og mun því njóta sterkra innviða bæjarfélagsins hvað varðar þjónustu, auk þess sem stutt er í marga af stærstu verslunar- og þjónustukjörnum höfuðborgarsvæðisins.
Samgöngur
Vetrarmýri verður vel tengd yfir í miðbæ Garðabæjar, en fyrirhuguð er jarðbrú yfir Reykjanesbraut fyrir gangandi og hjólandi umferð milli bæjarhluta. Nálægð við stofnbrautir gerir það að verkum að fyrir akandi er stutt í allar áttir. Góðar vegtengingar eru einnig innan hverfis; aðalgatan Vetrarbraut mun liggja í gegnum það allt og tengja við nærliggjandi hverfi. Á jaðri byggðarinnar, meðfram Reykjansbrautinni rísa atvinnuhúsalengjur sem í leiðinni þjóna hlutverki hljóðmanar sem dempar umferðarhljóð frá Reykjanesbraut. Í kjallara undir þeim verða bílastæðahús.
Fjölbreytt kerfi göngu- og hjólastíga tengir Vetrarmýri við nærliggjandi hverfi og vinsæl útivistarsvæði í nágrenninu.
Íþróttir
Í Vetrarmýri er nýtt fjölnota íþróttasvæði Stjörnunnar, Miðgarður. Nýr keppnisvöllur ásamt glæsilegu íþróttahúsi með tilheyrandi mannvirkjum og líflegri starfsemi munu setja mikinn svip á hverfið. Þá liggja skipulagsmörk Vetrarmýrar einnig að golfvelli og golfmiðstöð GKG. Fyrir íbúa Vetrarmýrar og nærliggjandi hverfa mun nábýlið við íþróttasvæðið og golfvöllinn skapa gríðarleg tækifæri til heilsueflingar og öflugs íþrótta- og tómstundastarfs.
Að auki mun fjölbreytt kerfi göngu- og hjólastíga, sem og nálægðin við náttúruperlur á borð við Heiðmörk og Vífilsstaðavatn verða íbúum hvatning til hollrar hreyfingar allan ársins hring, hvort sem þeir leggja stund á göngur, hlaup, golf, hjólreiðar, hestamennsku eða gönguskíði.
Skóli
Austan íþróttamiðstöðvarinnar, Miðgarðs, er gert ráð fyrir grunn- og leikskóla, samkvæmt deiliskipulagi.