Nýtt hverfi á besta stað

Vetrarmýri er nýtt og heillandi hverfi sem rís miðsvæðis í Garðabæ. Framkvæmdir við uppbyggingu þess hófust á miðju ári 2023 en uppbyggingarsvæðið er á afar spennandi stað í nágrenni við Vífilsstaði, golfvöll GKG, útivistarsvæði Heiðmerkur og nýja íþróttaaðstöðu Stjörnunnar í Miðgarði.

Hverfið mun njóta sterkra innviða Garðabæjar, auk þess sem stutt er úr hverfinu í marga af stærstu verslunarkjörnum höfuðborgarsvæðisins og fjölbreytta þjónustu. Góðar tengingar eru við stofnbrautir og almenningssamgöngur.

Byggingarland Vetrarmýrar er einstakt. Nálægðin við golfvöllinn og vinsæl útivistarsvæði eins og Heiðmörk, Vífilsstaðahæð og Vífilsstaðavatn, gerir hverfið að ákjósanlegum stað fyrir aktífan lífsstíl. Fjölbreytt kerfi göngu- og hjólastíga með tengingum við þessi svæði og nærliggjandi byggðir munu ýta enn frekar undir heilsusamlegan lífsstíl og holla hreyfingu, að ekki sé talað um návígið við hið nýja íþróttahús og íþróttasvæði Stjörnunnar.

Vistvænar lausnir eru órjúfanlegur hluti af hönnun hins nýja hverfis og er skipulag svæðisins umhverfisvottað af alþjóðlega vistvottunarfyrirtækinu BREEAM Communities í Bretlandi, en strangar kröfur liggja að baki slíkri vottun.

Það er Framkvæmdafélagið Arnarhvoll sem hefur umsjón með uppbyggingu fyrsta áfanga Vetrarmýrar.